Fátt slær við stemningunni í vel heppnuðu brúðkaupi

Gifting 01Systurdóttir mín Kristín Ósk Hjartardóttir gifti sig um helgina honum Stebba sínum. Kristín er sjálf feiknlega góð söngkona með einstaklega mikla og falllega rödd sem hún hefur mikið vald yfir, og hefur eignast trygga og góða vini sem margir eru líka miklir tónlistamenn sem slógu hver öðrum við með frábærum söng- og tónlistaratriðum bæði við athöfnina og svo í veislunni. Léttleiki og óþvingað andrúmsloft gaf einhverja bestu skemmtun sem ég hef lengi orðið aðnjótandi.
Ég stóðst ekki mátið að taka myndir og ætla að smella hér inn nokkrum þeirra til gamans.

Fleiri myndir eru hér í albúmi við hliðina merkt Brúðkaup


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sá þessa slóð fyrir tilviljun og vildi óska Unni og ykkur öllum til hamingju. með kveðju. Guðbjörg Helgadóttir.

Guðbjörg Helgadóttir (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband