Lengi vitað að brunavörnum væri ábótavant á Valhöll

img 2009 07 10 19 07 11Fyrir meira en þremur áratugum heyrði ég um hve vítverðar brunavarnir væru á Hótel Valhöll. Starfsfólk hafði þá strax miklar áhyggjur af því að ef eldur kæmi upp myndi hótelið fuðra upp á skammri stundu og starfsfólk og gestir sem kynnu að sofa á herbergjum sínum ættu vart undankomuleið.

Það kemur mér því afar undarlega fyrir sjónir að eftir endurteknar endurbætur á hótelinu á þessu árabili sem liðinn er síðan hafi þeim aldrei verið settur stóllinn fyrir dyrnar um alvöru brunavarnir.

Smella hér til að skoða fleiri myndir sem ég tók í gær.

 img 2009 07 10 17 58 36

img 2009 07 10 18 39 31 (1)


mbl.is Skýrslur teknar af starfsfólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Afi var varðstjóri hjá slökkviliði reykjavíkur um árabil og karl faðir minn slökkviliðsmaður.. þegar ég var krakki.. sem sagt fyrir 35-40 árum.. þá heyrði ég þá ræða um sín á milli hvað væri hægt að gera við Valhöll, því hún væri bara bálköstur sem biði eftir því að kveikt yrði í .. því segi ég eins og þú Helgi.. afhverju var ekki hótelinu hreinlega lokað þar til brunavörnum var komið í skikkanlegt horf.. er þetta ekki bara íslenskur slugsaraháttur.. þetta reddast ?

Óskar Þorkelsson, 11.7.2009 kl. 14:11

2 identicon

Í raun er þetta þvílík heppni að það skyldi hafa kviknað í hótelinu um miðjan dag í blíðviðrinu í gær  eftir að hótelgestir dagsins á undan voru farnir og ekki allir mættir og innritaðir fyrir næstu nótt. Ímyndið ykkur hve margir hefði farist ef kviknað hefði í hótelinu um nótt, útfrá rafmagni eða glóð í veitingasölum frá kertum eða öðru.

Hilmar (IP-tala skráð) 11.7.2009 kl. 19:09

3 Smámynd: cindy

Þökk sé ríkinu sem átti þessar eignir.

cindy, 11.7.2009 kl. 22:29

4 identicon

Merkilegt að því er haldið fram að úðakerfi hafi verið í öllu húsinu nema í
eldhúsinu. - Það sést þá vel hér hvaða gagn var af því úðakerfi því það á
að sjálfssögðu að hafa virkað fyrir alla elda utan eldhússins. Eru einhver
merki þess að það hafi hætings hót dregið úr eða seinkað útbreiðslu
eldsins? - Ekki get ég séð að svo sé. Húsið var alelda svo eldtungur stóð
hátt til himins úr öllu húsinu stafna á milli á 15 - 20 mínútum. - Það var
bókstaflega allt brunnið áður en slökkvilið komst á vettvang og var þó
ekkert smá hús og engin vindur sem flýtti útbreiðslu eldsins.

Hilmar (IP-tala skráð) 15.7.2009 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband