Bréf frá unglingnum sem við hentum í ruslið

„Ég hef grátið mikið og geri það enn. Ég elska Ísland svo mikið og ég var að vona að ég fengi að dvelja hér allt mitt líf, en þau gáfu mér ekki tækifæri til að komast af og lifa lífinu. Af hverju? Ég vil vita af hverju.

Ég hef aldrei séð eins gott fólk í lífinu eins og fólkið á Íslandi.

Ég er núna í Grikklandi og veit ekki hvað ég á að gera – hef ekki sofið í þrjá daga. Ég var settur í fangelsi á flugvellinum. Ég sver við líf mitt að í fangelsinu eru meira en hundrað manns. Ég gat ekki sofið, ég fann ekki stað eða rúm til að sofa á. Í morgun var mér sagt að ég þyrfti að koma með þeim í viðtal. Ég sver við guð að viðtalið tók ekki meira en tíu mínútur, og eftir það sögðu þau mér að ég væri frjáls. Ég spurði þau hvert ég ætti að fara, ég hef engan stað til að fara á hér í Grikklandil. Þau spurðu bara: Hvort villtu frekar fara eða vera áfram í fangelsi?

Ég vil ekki segja meira vegna þess að ég vil ekki láta mér líða mjög illa. Það sem ég vil segja núna, og ég er eins og grátandi barn, er:

Ég elskaði Ísland og ég vona að ég fái að sjá ykkur á Íslandi aftur og vil þakka ykkur kærlega öllum þeim sem hjálpuðu mér. ÉG ELSKA YKKUR ÖLL.

Með ást og einlægni og virðingu fyrir ykkur öllum.

Noor Al-Azzawi“
  

Hann er 19 ára Íraki og hefur dvalið hér hátt á annað ár við bið eftir svörum um hvort hann fengi hér skjól og þá hvort þessi hæfileikaríki ungi maður gæti hafið líf eins og annað ungt fólk sótt nám og byggt upp líf sitt til framtíðar. Við gerðumst formlegir aðilar að stríðinu sem hrakti hann á flótta og faðir hans kaus að aðstoða herliða okkar og Bandríkjanna sem þá kallaði ofsóknir yfir fjölskyldu hans og sérstaklega karllegginn. Hann er nú einn og vegalaus en hefur eignast fjölda vina og aðdáenda hér á landi þann tíma sem hann hefur beðið hælis, því Noor er mjög hæfileikaríkur ungur maður. 

Þrátt fyrir mikla erfiðleika við að fá vinnu og atvinnuleyfi án landavistarleyfis tókst honum það og sá vel um sig þegar hann var sóttur og sendur til Grikklands sömu nótt. - Þó hefur nefnd dómsmálarðaherra sjálfs sagt í skýrslu sinni að bíða eigi a.m.k. 15 daga frá því slík ákvörðun er kynnt hlutaðeigandi þar til hún er framkvæmd svo raunhæft sé að svara forsendum hennar.

Aleiga hans eru íslenskir peningar sem hann hefur unnið fyrir sér - en fékk ekki að skipta þeim í nothæfa mynt áður en honum var hent.

Ragna dómsmálaráðherra sjálf synjaði ósk Birgittu Jónsdóttur um að hann fengi að hafa símann sinn með sér svo hægt væri að halda tengslum og fylgjast með honum og að hann fengi þann 15 daga frest sem skýrsluhöfundar dómsmálráðuneytisins telja að beri að veita.

Má [kannski] en þarf alls ekki

Dyflinnar samningurinn á að tryggja að allir fái einhversstaðar lágmarks málsmeðferð og að ef ekkert annað landi vill geri það sé það skylda fyrsta viðkomulands. Grikkir ráða hinsvegar ekki við vandann og tryggja ekki fólki lágmarks meðferð, aðstoð og vernd jafnvel ekki svefnpláss.

- Allar ákvarðanir dómsmálaráðherra hér eru pólitískar ákvarðanir - hún má (kannski) en þarf alls ekki. - Engin lög eða reglur banna Rögnu að veita Noor og þeim öðrum sem hún sendi nú til Grikklands hæli, eða skylda hana til að senda hann úr landi - en Ragna gerir það samt, engin lög eða reglur banna Rögnu að leyfa Noor að hafa með sér símann - en Ragna gerir það samt, engin lög eða reglur banna Rögnu að veita Noor 15 daga málsmeðferðarfrest - en Ragna gerir það samt, enginn bannar Rögnu að sjá til þess að hann/þeir geti skipt krónunum sínum í nothæfan pening en Ragna gerir það samt, enginn skyldar Rögnu til að nota heimild Dyflinnarsamningsins um endursendingu til fyrsta Shengenlands en Ragna gerir það samt.


Geðþóttaákvarðanir dómsmálaráðherra

- Allt eru þetta geðþóttaákvarðanir sem Ragna ber ábyrgð á sem sést svo sorglega þegar þær eru færðar uppá raunverulega persónu, þennan 19 ára unga Íraka sem lenti á vergangi þegar fjölskylda hans aðstoðaði innrásarlið okkar og leitað var hefnda fyrir það í heimalandi hans. - Ekkert bannar okkur að veita honum hæli eða skyldar okkur til að senda hann til baka - en við gerum það samt afþví ráðherra telur sig mega það og geta það.

Mannréttindaráðherra ?

Ef það er ámælisvert að ónáða Rögnu á þeim einu stöðum sem til hennar næst og að hneykslanlegt að öskra á Rögnu þegar hún ætlar að tala um mannréttindi á ráðstefnu, þá nær skalinn ekki yfir þann glæp að henda fólki í ruslið eins og Ragna ÁKVEÐUR af geðþótta sínum og stefnu að gera í þessu máli.

Erum við kristið fólk?

Hvernig getur kristið fólk komið svona fram í nafni okkar sem kallar sig kristina þjóð og hefur krossmark í fána sínum?  Í Matteusarguðspjalli 25 segir:

„Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.  ....
Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig? Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?
... ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.`“

 

Sjá líka ágætar greinar á Smugunni Ruslið og Herþotur yfir Bagdad


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Það sem þér gerið yðar minnstu bræðrum....

Hildur Helga Sigurðardóttir, 17.10.2009 kl. 15:29

2 identicon

Væri ekki nær að losna við glæpahundana frá Lettlandi, Póllandi og víðar, henda þeim úr landi en leyfa heiðarlegu flóttafólki, sem byrjað er að byggja sér framtíð með vinnu og vinatengslum, að vera í friði !!!!

Eru lög okkar eitthvað brengluð eða er það siðferðiskenndin ???

Anna Grétarsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 16:18

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ég á dóttur á 18. ári.  Að ímynda mér hana, eina á vergangi einhvers staðar, vísað burtu úr öryggi, hlýju og manngæsku, svifta fjármunum og möguleika til samskipta, á grundvelli reglna sem virðast byggðar á flestu öðru en mannúð er skelfileg tilhugsun. Er það svona sem við vildum láta koma fram við börnin okkar? Hvers vegna komum við ekki fram við aðra eins og við vildum láta koma fram við okkur?

Markús frá Djúpalæk, 17.10.2009 kl. 17:50

4 Smámynd: A.L.F

Öll meðferð þessa máls er Rögnu og dómsmálaráðuneytinu til skammar. Ég mun seint skilja hvers vegna þeim var vísað úr landi.

A.L.F, 17.10.2009 kl. 19:10

5 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Það er kominn tími til að minna viðkomandi aðila á þá persónulegu ábyrgð sem þeir bera á því að taka þátt í að senda fólk út í opinn dauðann.

Það er þekkt aðferð að kenna því um að verið sé að fyljga skipunum yfirmanna, lögum eða reglum.

Þeir sem sendu fólk í útrýmingarbúðir nazista notuðu einmitt þá sömu aðferð, voru bara að fylgja skipunum.

Persónuleg ábyrgð flugstjórans, lögregluþjónsins, dómarans, ráðherrans og allra sem koma að því með einum eða öðrum hætti að senda einhvern út í opinn dauðann er ætíð til staðar. Jafnvel sá sem bara prentar út flugmiðann eða dælir eldsneyti á flugvélina.

Allir eru persónulega ábyrgir og er hægt að sækja til saka, þótt síðar verði.

Það er skylda hvers og eins að taka ekki þátt í þessari svívirðu.

Við íslendingar sendum fólk ekki út í opinn dauðann.

Við gerum ekki svoleiðis.

Baldvin Björgvinsson, 17.10.2009 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband