Að byggja á kviksyndi í farvegi flóðsins eða á traustari grunni

Ekkert vit er í öðru en að byrja á grunninum þegar byggja þarf hús. Þess vegna verðum við strax að ganga til aðildarviðræðna við ESB og semja um upptöku evru. Við leggjum ekki grunnin eftirá – eins og menn gerðu síðast.
-    Og vel að merkja Björn Bjarnson og félagar get ekki haldið því fram í alvöru að hægt sé að semja við ESB um evru og hvað eina utan ESB en að ekkert sé hægt að semja við ESB með aðildarviðræðum gangandi í ESB.
-    Til að endurreisa Ísland eftir hamfaraflóðið sem yfir okkur gekk verður nú að taka grunn að nýju bæjarstæði utan við farveg flóðsins uppi á bakkanum í þokkalegu skjóli og með trausta  jörð undir fót.  Árum saman höfðu menn reyndar bent á að ekkert vit væri að reisa efnahag landsins og ofvaxið bankakerfið á hvikulli og veikburða krónunni. Fyrr eða síðar hlaut illa að fara. — Fráleitt er samt að enn skuli vera til fólk sem af misskyldu stærlæti vill ekki horfast í augu við þau hrapalegu mistök sem voru að færa okkur ekki á grunn evrunnar og skjól ESB en vilja nú helst endurreisa landið á kviksyndinu í miðjum farvegi hamfarflóðsins – á sama stað og fyrr

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband