Með fullri viðringu fyrir hægri mönnum á Íslandi, svo ekki sé talað um honum Tryggva afa mínum heitnum sem var ekta fínn sjálfstæðislokksmaður í gegn, þá væri ágætt að íslenskt stjórnmálalíf þróaðist þannig að 25% væri sigur fyrir íslenska hægri flokkinn. Til þess að svo geti orðið þarf þó Samfylkingin að verða miklu stabílli og formaður hennar á hverjum tíma og forysta að hafa traustari pólítska sjálfsmynd af sér og flokknum til að telja sig ekki þurfa að hlaupa sífellt eftir dægurmálum en gleyma grundvallaratriðunum: "Frelsi, jafnrétti, bræðaralag" og þá er ekki bara átt við jafnrétti kynjanna, og með bræðralagi að sjálfsögðu allt verlferðarkerfið í sinni bestu mynd.
Hægrimenn sigurvegarar kosninganna í Finnlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Sunnudagur, 18. mars 2007 (breytt kl. 21:57) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.