Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
Jafnvel dómurum ber að kanna möguleika á sáttum milli aðila. En það er megin hlutverk lögmanna að gera samninga og gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna við samningsgerð, og meta með skjólstæðingum sínum ávinninginn af eftirgjöf og mögulegri samningsniðurstöðu á móti annarsvegar kostnaði og ávinningi af sigri fyrir dómi og svo kostnaðinn af hreinum ósigri.
Hver yrði samningsstaðan eftir að hafa hafnað samningi og tapa svo árum seinna dómsmálinu? - Og hver yrði staðan þann tíma sem málarekstur tæki? Yrði jafnvel sigur of dýru verði keyptur?
Ef líkur eru á svo dýrum ósigri að hann myndi næsta örugglega ríða fjárhag okkar að fullu eru allir samningar sem gera málið viðráðanlegt mikill ávinningur. - Lykilatriði er þó að samningurinn geri málið viðráðanlegt.
Sjálfur er ég engu vissari en Jón Steinar kveðst vera um hver réttarstaða okkar er varðandi Icesave. Ég veit ekki hvað réttast er að gera.
Ég hef tekið mér þá stöðu að vilja aðeins fá upplýsandi, skynsamlega og öfgalausa umfjöllun um málið.
Málflutning þeirra sem augljóslega hafa annan tilgang en að finna bestu niðurstöðu í málinu sjálfu verður að víkja til hliðar.
Eða eins og Lára Hanna segir í nýjustu grein sinni [hér]:
Ég hef lært, ef ekki á langri ævi þá að minnsta kosti í ölduróti vetrarins, að spyrja sjálfa mig ævinlega: Hver segir hvað? Af hvaða hvötum? Í þágu hvaða hagsmuna? Í umboði hvaða stjórnmálaafla? Það hefur reynst mér nokkuð vel í tilraunum mínum til að skilja hina ómálefnalegu og þröngsýnu umræðu sem einkennist af... jú, einmitt... orðheingilshætti og titlíngaskít.
Mikilvægir tenglar um málið:
Lára Hanna greinir hér frá heimsókn hennar með Herði Torfasyni til fjármálaráðherra sem sýndi þeim gögn um um trúnaðarkröfu Breta og Hollendinga hér.
Gauti B Eggertsson um sérkennilegan skilning laga tveggja pólitískra lögmanna hér.
Embættismenn skýra samninginn, forsendur og ákvæði hans hér (tenglar á gögn eru þarna á vinstri spásíu).
Guðmundur Hálfdánarson Segir Íslendinga sjálfa hafa skert fullveldið sjá hér
Skylda ráðamanna að láta dómstóla fjalla um Icesave, segir hæstaréttardómari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Þriðjudagur, 23. júní 2009 (breytt kl. 06:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Satt að segja hef ég verið svolítið undrandi og átt erfitt með að fóta mig um afstöðu til umkvörtunarefnis aðstandenda komu Dalai Lama hingað þ.e. að æðstu stjórnvöld hitti hann ekki öll. Ég held vart að hann kvarti sjálfur enda sýnd mikil virðing bæði af stjórnvöldum þingi og þjóð, og sjálfur veitir hann ekki viðtöl, smá eða stór nema með margra mánaða fyrirvara. Þá hefur hann ekki sjálfur óskað sérstaklega fyrirfram eftir viðtölum við ráðamenn við komu sína hingað.
Þó var vitað fyrir allnokkru að forseti alþingis og utanríkismálanefnd þingsins biði honum til heimsóknar í alþingishúsið við einkaheimsókn hans til landsins. Einnig kom í ljós að a.m.k. tveir ráðherrar (Árni Páll og Svandís Svavarsd.) sóttu samkomu í Hallgrímskirkju sem biskup Íslands bauð Dalai Lama til. Það var einnig fljótt ljóst að Ögmundur Jónsson, Katrín Júlíusdóttir og Björgvin Sigurðsson ásamt Birgittu Jónsdóttur hitta Dalai Lama sérstaklega.
EN samt kvörtuðu íslenskir aðstandendur komu hans opinberlega yfir því að enn æðri stjórnvöld hittu hann ekki. Vart er þá öðrum til að dreifa æðri þeim sem hittu hann en forsetanum, sem eins og venja er til er á Smáþjóðaleikunum á Krít, utanríkisráðherra er á Möltu og forsætisráðherra var úti á landi í gær og í samtöðusamningum með aðilum vinnumarkaðarins í dag.
Komið hefur fram að ætlast er til að ráðamenn óski eftir fundi með Dalai Lama en ekki að hann biðji þá um fund með sér. Þannig hafa þeir sem þegar hafa hitt hann allir átt frumkvæði að því og þeirri virðingu sem þeir þannig hafa sýnt honum og þjóð hans.
Þessu skítur þó skökku við þegar leitað er viðtala við Dalai Lama sjálfan.
Eftir ítrekaðar óskir til aðstandenda komu DL hingað um að fá að hitta hann til að spyrja hann einnar spurningar fyrir heimildamynd sem verið er að safna efni í og til vara að taka af honum ljósmyndir, fékkst loks svar, og það var á þá leið að allar óskir um viðtöl við Dalai Lama smá eða stór þyrftu að fara í gegnum Lundúnaskrifstofuna með margra mánaða fyrirvara. Einnig að aðeins ljósmyndarar helstu fjölmiðla fengju 45 sekúndur til að taka af honum myndir við upphaf fyrirlestursins í Laugardalshöll. Ekkert var minnst á blaðamannafundinn eða önnur tækifæri til að ná myndum eða hitta hann líklega vegna þess hve stíft það var allt skipulagt fyrirfram.
Þ.e. Þeir sömu aðilar og kvarta yfir að forsetinn snúi ekki fyrirvaralaust frá Krít og utanríkisráðherra frá Möltu og forsætisráðherra hendi frá sér sínum verkum, vinna sjálfir eftir stífri dagskrá sem aðeins Lundúnaskrifstofan getur hnikað ögn til með margra mánaða fyrirvara.
Óljósar fregnir af sendiherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Þriðjudagur, 2. júní 2009 (breytt 3.6.2009 kl. 01:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)