Mikið fagnaðarefni og léttir að Samfylkingin sem er sá flokkur sem best er til þess fallinn að endurreisa velferðarkerfið er nú á góðri siglingu uppávið. Gleður mig líka að sjá að VG er ekki að hrapa að sama skapi og að Íslandshreyfingin er að síga á. Það gæti nefnilega bjargað 3-4 þingmönnum ef Íslandshreyfingin kemst alla leið yfir 5% markið frekar en að taka 3-4% og fá engan.
Ég hef undanfarið verið erlendis á fundum og ráðstefnum um málefni heilabilaðra og mun því nú í fyrsta sinn á ævi minni ekki verða heima á kjördag. - Satt að segja svolítið skrítin tilfinning að geta ekki fylgst með í návígi og lagt góðum velferðarsinnum gott lið.
Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Þriðjudagur, 8. maí 2007 (breytt 10.5.2007 kl. 12:56) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.