Þeir félagar Steingrímur J og Guðni Ágústsson voru í sárum í Kastljósi og létu allar sínar hugsanir fjúka en sönnuðu þó fyrst og fremst fullkomlega að þeir voru ekki valkostur til stjórnarmyndunar. Orð og athafnir Steingríms J verða nú enn meiri ráðgáta en fyrr þar sem allt sem hann hefur sagt og gert frá kosningum hefur útilokað í reynd vinstristjórn - og svo nú er hann sjálfur í Kastljósi fullnaðarsönnun fyrir því að ISG átti engra annarra kosta völ en leita samstarfs við Sjálfstæðisflokk. Aldrei fyrr hefur það verið svo borðleggjandi við upphaf samstarfs með Sjálfstæðisflokki að engra annarra kosta völ var fyrir samstarfsflokkinn. - Þökk sé Steingrími J og Guðna Ágústssyni.
Ingibjörg Sólrún: VG vildi ekki mynda stjórn með Framsóknarflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Fimmtudagur, 17. maí 2007 (breytt kl. 21:29) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.