Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Nú væri betra ef við værum komin í ESB.
Nýi flugmálasamningur ESB og USA merkir auðvitað gjörbreytingu í samkeppnisumhverfi Icelandair. Í stað þess að Ísland hafi miklu betri og frjálsari samning við USA fyrir hönd sinna flugfélaga eins og verið hefur um áratugi, er ESB nú með með frjálsari samning en Ísland t.d. mega nú hvaða flugfélög ESB sem er ekki aðeins fljúga til hvaða borgar sem er í USA á hvaða skilmálum sem þau vilja heldur líka á milli hvaða borga sem er í USA þ.e. stunda innanlandsflug þar.
Fyrirhyggjuleysi okkar að sækja ekki um ESB aðild er algjört og á örugglega eftir að koma fram í stærri málum en þessu á næstu árum.
![]() |
Flugsamkomulag milli Bandaríkjanna og ESB tekst á loft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Fimmtudagur, 22. mars 2007 (breytt kl. 20:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 19. mars 2007 (breytt kl. 21:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

Hafnarfjörður hefur fram til þess borið skarðan hlut frá borði því þegar ÍSAL var reist sá þjóðin svo miklum ofsjónum yfir mögulegum gróða Hafnarfjarðar af álverinu að sett voru sérstök lög til að ríkið en ekki Hafnarfjörður nyti mest allra skattteknanna af Ísal. Því hafa það aldrei verið nema smápeningar sem Hafnarfjörður hefur haft í tekjur af álverinu og álverið átti höfnina fyrstu 25 árin og því engar tekjur þaðan.
Af sömu ástæðu var lögð sérstök áhersla á að allt höfðuborgarsvæði nyti atvinnutækifæranna í álverinu og því var frá upphafi sett á öflugt rútukerfi til að sækja starfsmenn ef öllu höfuðborgarsvæðinu til að starfa þar. Einstaka verktakar hafa svo orðið feikna ríkir af viðskiptum við álverið og haslað sér völl í öðrum stórviðskiptum í framhaldinu, - það eru ekki Hafnfirðingar eftir því sem ég kemst næst þó svo ég véfengi ekki að hafnfirsk fyrirtæki hafi umtalsverð viðskipti við álverið.
Punkturinn er þó sá að Hafnarfjörður hefur ekki notið sem skyldi arðs af álverinu sem þó mengar loftið þeirra brennisteini og flúor alla daga. Heldur hefur arðurinn skipulega verið fluttur framhjá Hafnarfirði. Ef álverið færi eða fengi ekki að stækka er enginn vafi á að annað álver fengi að rísa í staðin t.d. fyrir utan Keflavík til að nota þá orku sem losnaði, og þau fyrirtæki sem hafa reynslu af að þjónusta álver fengju örugglega sitt þar ef þau vildu.
![]() |
Tekjuauki Hafnfirðinga af stækkun álvers 3,4-4,7 milljarðar króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 19. mars 2007 (breytt kl. 17:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

![]() |
Tölvuvert tjón á loftum í húsi HR vegna vatnsleka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 19. mars 2007 (breytt kl. 14:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Viðbót um Guðs útvöldu: Hugmyndin um Guðs útvöldu er afar hættuleg venjulegu fólki því hún stendur í vegi fyrir því að það fólk geti sett sig í spor annarra sem annars er mikilvægasta þroskastigið og kemur oftast með unglingastiginu, að geta sett sig í spor annarra og fundið þeirra sársauka og þeirra tilfinningar. Ef hinsvegar því er bætt við uppeldið að aðrir séu öðruvísi, óæðri og ekki eins þóknanlegir Guði stendur það í vegi þess að viðkomandi geti meðtekið þennan þroska með eðlilegum hætti. Þegar svo við það bætist að trúarbragðahöfundurinn Móse segir þjóð sinni að gjöreyða borgum sem hún vilji leggja undir sig, vægja engum og þakka Guði fyrir ræktarland sem þeir hafi ekki sjálfir sáð, hús sem þeir hafi ekki sjálfir reist, og fagra hluti sem þeir hafi ekki sjálfir smíðað, þá í það minnsta er þeim ekki hollt að við hin tökum undir um að tilfinngar og réttindi Palistínumanna séu léttvægari en Ísraelsmanna. - Ég held að jafnvel Guð sé ekki sáttur við það.
![]() |
Norðmenn aflétta viðskiptabanni á heimastjórn Palestínumanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 19. mars 2007 (breytt kl. 13:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Yngri sonur okkar Einar Axel fékk 100 þúsund krónur í verðlaun fyrir fyrsta sæti í stæðrfræðikeppni framhaldsskólanna í gær, en fjögur eftsu sætin tryggja jafnframt sæti á Ólympíukeppninni í stærðfræði sem verður í Víetnam í sumar. Einar er á þriðja ári í sínum menntaskóla og það verður nú í þriðja sinn í röð sem hann öðlast sæti í Ólympíukepninni. Fyrst í Mexikó en þar gekk einmitt yfir fellibylurinn Emily af styrknum 4-5 daginn áður en átti að halda heim, sama sumar og Katrín fór yfir New Orleans. Áður náðu þeir þó að sjá píramída Mayanna og margt fleira merkilegt. Í fyrra var keppnin í Slóveníu og var bæði Alpanna og Adríahafs vitjað og ísl liðið náði besta árangri sínum fram til þessa, og svo núna í Víetnam. Annars náði hann einnig ólýmpíusæti í eðlisfræði sem haldin verður í Íran í sumar en þar sem keppninar fara fram samtímis verður hann að velja aðra þeirra og fyrsta sætið í stæðrfræðinni fær að ráða því.
Sl. kvöld var líka mikil lukka á frumsýningu í Hagskóla þar sem þau yngri dóttir mín Hafdís Helga með Oddi vini sínu voru aðstoðarleikstjórar. Fyrir aðeins mánuði fóru þau með burðarhlutverk í uppfærslu Hamrahlíðarskólans, en auk þess hefur Hafdís verið með burðarhlutverk í allmörgum ungmennaleiksýningum öðrum, og annast götuleikhús með fleirum, en fyrst þó sem Sól litla í kvikmyndinni "Íslenski draumurinn".
Eldri dóttirin Jórunn Edda er við heimspekinám á Ítalíu og stendur sig frábærlega, var með 30, 28 og 30 af 30 mögulegum á munnlegum heimspekiprófum á ítölsku, þar sem bekkurinn (háskólinn) situr og hlustar á meðan prófað er. Þannig var það víst líka hér fyrir 40 árum. - En Ítalía er svo sannanlega (hugar)heimur útaf fyrir sig.
Haukur Már Helgason eslta "barnið" okkar 28 ára var fyrir nokkru að tryggja heimsókn heitasta heimspekingsins í dag Slavoj Zizek á næstu vikum, en Haukur þýddi eftir hann Órapláguna eða The Plague of Fantasies, sem vonandi nær að koma út í einhverju formu í tenglsum við heimsóknina.
Eitt sinn sagði við mig vitur kona: ef foreldrarnir eru ekki montnir af börnunum sínum er það enginn, - og einhver verður að vera það. - Ég get ekki neitað því að montið krefst útrásar í dag.
Stjórnmál og samfélag | Mánudagur, 19. mars 2007 (breytt 22.3.2007 kl. 19:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

![]() |
Hægrimenn sigurvegarar kosninganna í Finnlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Sunnudagur, 18. mars 2007 (breytt kl. 21:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það hlýtur að vera talsvert áfall fyrir álverssinna að álverinu sé ekki gert unnt að efna loforð sitt um að greiða sín gjöld til Hafnarfjarðar eins og önnur fyrirtæki í bænum. Það er nefnilega þannig að það er langt í frá að Hafnarförður hafi fengið af álverinu gjöld eins og af öðrum fyrirtækjum. Það þótti á sínum tíma einmitt ekki réttlátt að Hafnarfjörður græddi svo neinu nam á álverinu gróðinn ætti að ganga til ríkisins og því voru sett sér lög sem færðu ríkinu mest allar skatttekjur sem hefðu átt að ganga til Hafnarfjarðar ef sömu reglur giltu um álverið og önnur fyrirtæki.
Reyndar er merkilegt að álverið hefur ekki lagt sérstaklega til samfélagsmála í Hafnarfirði fyrr en ljóst var 2002 að Hafnarfjarðarbær ætlaði að leggja stækkunina í dóm bæjarbúa, en hefur tekið vel til hendinni síðustu ár t.d. með stuðningi við íþróttaélögin, og Björgvin Halldórsson.
Á nokkuð að bíða og sjá hvort Hafnfirðingar samþykki örugglega? - Reyndar er ég viss um að stækkun álversins verður samþykkt, hræðslupólitíkin leiðir óhjákvæmilega til þess að margir kjósendur vilja ekki taka ábyrgð á að álverið fari heldur láta öðrum það eftir og greiða því stækkun samþykki eða sitja heima.
![]() |
Sól í Straumi: Fjárhagsleg rök fyrir samþykki stækkunar Alcan brostin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Sunnudagur, 18. mars 2007 (breytt kl. 21:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Auk þeirra sem nú munu hverfa úr sölum Alþingis fóru óvenju margir á kjörtímabilinu, ef svo kosningar breyta svona miklu í hlutfalli milli flokkanna eins og skoðanakannanir nú benda til verða alger umskipti og jafnvel aðeins fáir þingmenn með umtalsverða reynslu.
Meðal þeirra sem ég mun sakna er hægláti þingmaðurinn og fyrrverandi ráðherrann Jón Kristjánsson. Ég lærði vel að meta hann þegar ég þurfti oft að sækja ráðstefnur og viðburði á heilbrigðissviði og hann var alltaf mættur til að hlusta á fólk, og þegar hann svo var kominn í félagsmálaráðuneytið og ég var viðstadur afmæli Fjölsmiðjunnar í Kópavogi þá var Jón Kristjánsson aftur mættur þar til að hlusta og hitta venjulegt fólk á sínu sviði. - Ég veit af sömu ástæðu að ekki eru allir ráðherrar svo duglegir að koma og hitta og hlusta á sitt fólk.
Ég mun líka sakna mikið þeirra Rannveigar Guðmundsdóttur og Margrétar Frímannsdóttur, en einnig Halldórs Blöndal þrátt fyrir að vera oft ósammála sjónarmiðum hans þá virðist hann hreinskiptinn og ekki víla fyrir sér að láta vita af því þegar hann er ekki sammála félögum sínum. - Sem stjórnmálamaður hafði hann því þekktar skoðanir en ekki bara flokk.
Formið sem verið hefur á prófkjörum hefur smá saman valið skoðanalaust fólk á listana því til að ná árangri í prófkjörum þar sem hver kjósandi greiðir mörgum frambjóðendum atkvæði þurfa frambjóðendur að hafa gætt þess að fá enga hópa upp á móti sér. Því vinnur frægt fólk sem ekki hefur frægar skoðanir í prófkjörum. Viðkunnanlegir vinna en þeir sem hafa skoðanir eru rægðir og fá því ekki þann breiða stuðning sem hver maður þarf til að ná árangri í svona prófkjöri. - Því sakna ég strax Halldórs Blöndal, hann á þekktar skoðanir.
Annars er Ögmundur Jónasson einn sá þingmaður sem ég hef hvað mestar mætur á þó er ég algerlega ósammála honum um nokkur grundvallaratriði eins og aðild að ESB og fleiri mál. Merkilegt nokk þá virðast einnig 40% stuðningsmanna VG vera ósammála VG um ESB stefnuna. - Það afsannar að fólk hafi farið frá Samfylkingunni vegna ESB stefnu hennar. En Ögmundur á þekktar skoðanir og verður vonandi áfram á þingi þó svo hann og Steingrímur J megi gjarnan skipta um skoðun á ESB.
![]() |
Fundum Alþingis frestað fram á sumar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Sunnudagur, 18. mars 2007 (breytt 25.3.2007 kl. 16:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Skerðing barnabóta gagnrýnd harðlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Laugardagur, 17. mars 2007 (breytt kl. 20:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)