Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Íbúðahverfi byggð þar sem hraun munu renna

Vallahverfi sem nú rís í nágrenni álversins í Straumsvík er ekki aðeins skipulagt svo nærri uppsprettu mengunar og við öflugustu háspennulínur á Íslandi heldur er það reist á aðeins 850 ára gömlu hrauni þar sem örugglega mun renna hraun aftur, aðeins spurning um hvenær. Næsti eldgígur sem það hraun rann úr er aðeins í nokkurra kílómetra fjarlægð.

Á Reykjanesi verða goshrinur sem standa í um 200 ár og hefjast með um 1000 ára millibili - Nú eru rúm 1000 ár síðan síðsta hrina hófst en hraunið undir Vallabyggð var eitt það síðasta sem rann í þeirri hrinu árið 1151 í Krísuvíkureldum.

Eldgígur mokaður í burtuÁ myndinni sem hér má sjá, er verið að moka í burtu merkilegum eldgíg þeim sem næstur er nokkru höfuðborgarsvæði í heiminum og heitir þá væntanlega bara "gjallnáma" eða eitthvað viðlíka. Ef eitthvað vit væri í okkur hefði Þetta með öðru átt að verða verndaðar minjar og aðdráttarafl ferðamanna en ég held við viljum ekki vita af svona minjum svona nærri okkur. Reyndar er Reykjanesskagi í heild einstakur  þar sem úthfashryggurinn kemur upp á yfirborðið og er eini slíki staður í veröldinni, en önnur eldgosasvæði okkar eru blanda af heita reitnum og Atlantsahafshryggnum, og eru því ekki ómengaður úthafshryggur eins og Reykjnesskaginn.

Við íslendningar erum ótrúlega skammsýnir í skipulagi byggðar, ekki aðeins byggjum við án snjóflóðavarna undir bröttum fjallshliðum þar sem fyrr eða síðar munu falla stór snjóflóð heldur líka á eldfjöllum (Heimaey) og við jaðra þeirra þar sem örugglega fyrr eða síðar mun renna hraun yfir - án neinna fyrirfram hugmynda um hvernig á að verja byggðina þegar þessir alvarlegu atburðir sem fylgja landi okkar munu gerast.

Í ofanálag göngum við afar illa um okkar næsta umhverfi þó við viljum verja fjarlægt hálendið okkar. Eldgosaminjar eru mokaðar í burtu eins og hvert annað rusl og hraun eru rudd langt útfyrir vegstæði við vegagerð sem oft er um þau þvers og kruss.


Afhverju ekki úr 14 í 16 ár?

Það hefur verið svívirða lengi á Íslandi að 14 ára eigi börn að teljast kynferðilega sjálfráða, þannig að þegar þeim aldri væri náð fríaði það fullorðið fólk ábyrgð á kynathöfnum sínum með börnunum ef þau hafa fengist til að samsinna. Í USA er þessi aldur 18 ára en víðast í Evrópu 16 ára. Afhverju hækkuðu þeir það ekki í 16 ár nú í stað 15? Það er enginn að tala um að þessi mörk séu notuð gegn jafnöldrum en þessi lágu mörk gefa fullorðnu fólki sem misnotar ungmenni óþarfa réttlætingu löggjafans.Hærri og lægri
mbl.is Fyrningarfrestur á kynferðisafbrotum gegn börnum afnuminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er örugglega verið að gæta hagsmuna okkar?

Nú þegar landeigendur hafa myndað með sér öflug og hávær samtök til að berjast gegn framgangi þjóðlendulaganna er enn mikilvægara en áður að alveg ljóst sé að hagsmuna þjóðarinnar sé gætt í fjármálaráðuneytinu. - Vonandi er þessi eftirgjöf ekki til merkis um að hagsmunum okkar sé ekki lengur borgið þar.
mbl.is Þjóðlendudómi ekki áfrýjað til Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin: "aftur til upphafsins" - Lausafylgið er á mikilli ferð

Það má merkja af skoðanakönnunum að lausafylgið er á mikilli ferð, nú staldrar það við hjá Sjálfstæðisflokknum.

Reyndar verður Samfylkingin að gefa kjósendum góða ástæðu til að koma til sín ef Sjálfstæðisflokkur á ekki eftir að fá að vaxa enn þegar allir flokkar taka að höggva í VG á næstunni því þaðan verður mest að hafa í kosningabaráttunni eins og staðan hefur verið undanfarið.

Back to the Basics eða aftur til upphafsins ætti að vera þema Samfylkingarinnar við kosningaundirbúning sinn og mótun kosninagstefnuskrár. Þar sem Samfylkingin einfaldlega leggur fyrir sig og kjósendur grundvalalratriði jafnaðarstefnunnar, aftur í grunninn, og rifjar upp grundvallaratriði velferðakerfisins og afhverju Samfylkinin er best til þess fallin að endurreisa velferðarkerfið. - Það yrði útkalla til allra sem hafa stutt velferðarkerfið og hugmyndir jafnaðarmanna. Jafnvel Steingrímur J vísar nú til norræna módelsins sem leiðarljóss þegar í raun það er Samfylkingin sem flokkur íslenskra jafnðarmanna sem alla tíð hefur barist fyrir því, með systurflokkum sínum á Norðurlöndum. - Það væri laust við tækifærismennsku og minniti á stöðugleika grunnstefnu Samfylkingarinnar því umræðan og málefninn byggðu á grundvallaratriðum jafnðarstefnunnar, og full þörf er augljóslega á því.

Íslendingar vilja vera öfgalausir jafnaðarmenn þegar til kastanna kemur og þekkja alvöru réttlæti og velferðakerfi þegar þeir sjá það. - Ef Samfylkingin tjáir ekki afl, yfirvegun og skýra stefnu um grundvallaratriði í anda jafnaðarstefnunnar mun fylgið aðeins flytjast frá VG til Sjálfstæðisflokksins og til Framsóknarflokksins þegar tekið verður að keppa um atkvæðin af fullum þunga. - Og ríkisstjórnin mun halda velli.


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst mikið frá síðustu könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt mótsagnakennt við varnir á flugvöllum

Það er margt undarlegt og mótsagnakennt við gríðlegar varnir á flugvöllum til að hindra hryðjuverk og oft virðist einfaldlega heilbrigða skynsemi hafa skort í uppskriftina.

Sterk rök má færa fyrir því að í raun séu allar þessar varnir tafir og óþægindi eingögnu til að verja farþega fyrsta farrýmis. Þ.e. hinir safnast nú vegna tafnna í miklu stærri hópum en áður í innritunarsölum, þar sem einfaldast væri, að bera inn ferðtöskur fullar af sprengiefni og ganga út, ef tilgangurinn væri að valda usla í flugi og drepa vesturlandabúa, eins og á að hafa verið tilgangur bretanna sem eiga að hafa ætlað að sprengja flugvélar yir Atlantshafi, nema óþarft væri að deyja sjálfir.

Til að ná sama tilgangi þarf ekki annað en komast í innritunarisalinn á flugstöð. - Þar stoppa hinsvegar Sagaklass-farþegar ekki nema augnablik, því þeir fá forgang við innritun. Þannig er það allstaðar í heiminum. Hertu varnirnar duga þeim því vel en gera almenna farþega varnarlausari þar sem þeir safnast saman enn fleiri og lengur en áður fyrir framan alla vopna- og sprengjuleit. - Ef slíkt gerðist í stórri flugstöð myndi það valda gríðalegri ringulreið, töfum í öllu flugi og ótta.

- Á sama tíma ganga lestir án allra varna eða vopnaleitar, en Sagaklass-farþegar heimsins eru líklega heldur ekki þar á ferð.


mbl.is Flugmaður í of miklu uppnámi til að fljúga eftir þras við öryggisvörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánshæfismat ríkissjóðs undirstaða bankanna

Mörgum virðist hafa komið á óvart hve skýrt lánshæfismat einkavæddu bankanna er tengt lænshæfismati ríkissjóðs. Nú má reikna með að matið á bönkunum sigi aftur, því ein megin forsendan fyrir góðu mati þeirra er að ríkissjóður muni hlaupa undir bagga ef illa fer hjá bönkunum. Í raun voru þau tengsl mestu duldu verðmæti bakanna og forsendan fyrir útrás þeirra.

Þeir sem keyptu bankana voru ekki síst að kaupa lánshæfismatið, til að geta tekið mikil lán til að skapa mikil umsvif. Þjóðin fékk þó ekki greitt fyrir það en gæti þurft sjálf að greiða fyrir það síðar. Allt hangir þetta saman þannig að ef lánshæfismat ríkisjóðs versnar mikið versna lánakjör sem bankarnir byggja umsvif sín á og endurfjármögnun verður erfiðari, og ef í útlöndum er talið að ríkið íslenska verði að taka mikla áhættu a sig vegna bankanna skerðir það aftur lánshæfismat ríkissjóðs sem aftur skerðir lánshæfismat bankanna og ....


mbl.is Segja lækkun Fitch á lánshæfismati ríkissjóðs ekki koma á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norrænt velferðarsamfélag eða ekki???

"Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs (VG), sagði ... í alþingiskosningum í vor verði kosið um hvers konar samfélag menn vilji, norrænt velferðarsamfélag eða ekki."

Ég er satt að segja svolítið áttavilltur yfir þessum orðum Steingríms. Það er nú ekki svo ýkja langt síðan kratarnir voru að sögn allaballa og fyrri eðalkomma ekki í húsum hafandi, stéttasvikarar og verri en íhaldið fyrir að berjast fyrir norræna módelinu. Er ekki kominn tími til að hann biðji kratana afsökunar á fyrri stóryrðum sínum í þeirra garð? - Varla stofnaði Steingrímur sér flokk til að hafa norræna módelið að sínu helsta leiðarljósi nákvæmlega eins og áður kratarnir og nú Samfylkingin?


mbl.is Steingrímur J: Kyrrstaða verði rofin í jafnréttismálum og RÚV endurheimt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott tækifæri til að stíga útúr vitleysunni

Það ætti að afþakka peninginn en lýsa jafnframt yfir að hvalveiðum sé lokið i bili. Þannig væri þetta gott tækifæri fyrir okkur að ganga uppréttir út úr þessum vitleysissirkus sem stofnað var til sl haust.
mbl.is WSPA bjóða ríkisstjórninni 95.000 pund fyrir tvo hvali og samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB mun ekki vega að grundvallarhagsmunum neins aðildarríkis

Nú þegar helstu andstæðingum ESB-aðildarviðræðna er loks orðið ljóst að öll rök eru fyrir að við myndum ekki aðeins halda fullum raunverulegum yfirráðum yfir okkar fiskimiðum heldur líklega fá hlutdeild í aflaheimildum sem ESB á og/eða kaupir annarstaðar frá, þá er það er undarleg vænisýki að klifa á því að ESB gæti ákveðið eftirá að breyta reglum til að taka af okkur fiskimiðin.

Fyrir utan að það hefur verið mikilvægasta regla ESB frá upphafi að brjóta aldrei gegn grundvallarhagsmunum neins aðaldarríkis, þá má beita sömu rökum gegn öllum erlendum samskiptum okkar.

Sameinuðu þjóðirnar gætu gert okkur nærri hvað sem er, þær hafa t.d. á valdi sínu að hernema ríki og svipta þau ríkisstjórn og fullveldi þ.e. ekki þarf að breyta reglum til þess, -en þurfum við að óttast það? ....Bandaríkin gætu ákveðið að taka Ísland og innlima það, en þurfum við að óttast það? ....ESB gæti nú þegar ákveðið að breyta ýmsum reglum og loka á viðskipti við okkur nema við gerðum eins og þeir vildu í einhverju máli, -en þurfum við að óttast það?

- Því nær sem við erum ákvaraðanatökuferlinu því minni hætta er á að okkur sé sýndur yfirgangur og ósanngirni. Sem aðildarríki væri miklu minni hætta á að ESB gengi gegn grundvallarhagsmunum okkar en þegar við erum utan ESB því ölli hin aðildarríkin verða að geta búist við því sama og eitt þeirra verður fyrir. Þannig að ef ESB myndi brjóta gegn grundvallarhagsmunum eins aðildarríkis geta hin ekki lengur treyst því að verða ekki fyrir því sama. Það er því allt heila samstarfið og bandalagið sem væri í húfi ef ríkin gætu ekki treyst því að slíkt gerðist ekki.

Það er ekki meiri hætta á að ESB myndi eftirá gegn okkar vilja breyta reglum til að svipta okkur fiskimiðunum en að Sameinuðu þjóðirnar ákveðu að nota Ísland sem ruslahaug undir kjarnorkuúrgang heimsins. - Sameinuðu þjóðirnar gætu faktískt gert það en við en hættan á því er engin, þannig einfaldlega fara alþjóðastofnanir og bandalög ekki með vald sitt, og ef vilji væri til þess þyrftum við ekki að gerast aðilar til a þeir brytu svo harkalega gegn okkur, vondukallarnir myndu einfaldlega gera það hvort sem er.


mbl.is Fulltrúar Samfylkingar: Full yfirráð auk veiðiheimilda annars staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur loks lesið kosningaloforð flokksins

Auðvitað er þetta ekki nýtt mál en það er nýtt að loksins virðast Framsóknarmenn hafa dregið fram kosningastefnuskrá sína frá því fyrir fjórum árum og sjá sitt óvænna að þurfa nú í skyndi að efna eitt og annað sem þeir lofuðu þá. - Það er gott svo langt sem það nær.

Þetta er ágæt skilgreining sem höfð er eftir Jóni með þessum hætti í fréttinni sbr.:

"Þá sagði Jón, að hugtakið og raunveruleikinn þjóðareign fæli það í sér, að eignartilkalli eða yfirráðatilburðum einkaaðila, hvort sem um væri að ræða einkaaðila, lögaðila, samtaka, stórfyrirtækja eða gróðaaðila, væri hafnað og hrundið í eitt skipti fyrir öll. Þessi höfnun skipti mjög miklu máli og það öryggi, sem stjórnarskráin veitti. „Hér er því ekki um neinskonar réttaróvissu að ræða," sagði Jón"


mbl.is Segir frumvarp um auðlindaákvæði eiga áralangan aðdraganda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband