Það rann upp fyrir mér ljós þegar ég var að vafra í gegnum myndasafnið mitt og rakst á þessa mynd sem ég tók af þingmönnum úr Kópavogi sem þá sáta á þingi fyrir rúmum 2 árum að ljóst er að aðeins einn þeirra sex sem eru á myndinni verði áfram á þingi.
Sú var tíð að Rannveig Guðmundsóttir var eini þingmaður Kópavogsbúa þó Kópavogur væri næst stærsta sveitarfélag landsins. Reyndar eru allar líkur að á næsta kjörtímabili verði tveir úr Kópavogi þar sem Ármann Kr Ólafsson er í 3ja sæti hjá Sjálfstæðisflokknum og Katrín Júlíusdóttir er nú í öðru sæti hjá Samfylkingunni.
Sem hlutfall af íbúafjölda ættu jafnan að vera 5-6 þingmenn Kópavogsbúar.Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Þriðjudagur, 27. mars 2007 (breytt 28.3.2007 kl. 01:20) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.