Við krísuástand birtist oft algerlega ný hlið á fólki. Sumir lyppast niður og vita ekki sitt rjúkandi ráð þegar ósköp dynja yfir. - Ingibjörg Sólrún er dæmi um hið gangstæða og hefur oft staðið sig best þegar mest á reynir og er því mikill missir af því að hún er ekki heil heilsu og til staðar núna.
- En á móti birtist nú Þorgerður Katrín í sínu besta formi og sýnir að hún er þeirrar gerðar sem nýtir allt sitt besta þegar mest á reynir. Svör hennar undanfarið og skýrt sjálfstæði og sjálfsöryggi vitna um að hún fókusi extra vel í krísu og greini aðalatriði frá aukaatriðum og þori að vita hvenær þarf að taka ákvörðun og hvenær ekki. - Það er helsta huggunin í augnablikinu.
Biðlað til helstu vinaþjóða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Sunnudagur, 5. október 2008 (breytt kl. 22:41) | Facebook
Athugasemdir
Alveg sammála þér. Þorgerður Katrín er bara flott og stendur sig með prýði.
Jón Ragnar Björnsson, 5.10.2008 kl. 17:31
Það væri nú allt í lagi að sýna smá sanngirni. Ingibjörg Sólrún fór í aðgerð. Það getur komið fyrir besta fólk.
Brynjar Jóhannsson, 5.10.2008 kl. 18:37
Þetta fólk er nú fullseint að ybba sig...er ekki Þorgerður hluti af þessari stjórn sem er búin að sofa á verðinum.....og bæði þegja og ljúga um stöðuna...eru Þorgerður og ISG ekki búnar að hafa nógan tíma til að tjá sig...þetta er mjög ótrúverðugt að mínu viti.
Haraldur Davíðsson, 5.10.2008 kl. 19:36
Brynjar þú hefur eitthvað misskilið það sem ég segi um ISG, ég segi hana dæmi um hið gagnstæða við þá sem lippast niður.
Helgi Jóhann Hauksson, 5.10.2008 kl. 22:42
Mig minnir einmitt að þegar kennarakrísan kom upp, þá bókstaflega hvarf Þorgerður af sjónarsviðinu í tvær vikur eða svo þar til málið var leyst, og ekki var hún á fundum vegna málsins.
JBJ (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 12:47
Já ég skrifa upp á þetta.
Mjög hæfur pólitíkus.
Jón Gunnar Bjarkan, 6.10.2008 kl. 14:56
Það er nú létt í vasa fyrir okkur þó einhverjir pólitíkusar séu keikir eða réttara sagt viti ekki af vandanum. Heldur vil ég hokin stjórnmálamann sem talar af skynsemi en einhvern atvinnugasprara sem segir okkur að allt reddist.
Sigurður Þórðarson, 6.10.2008 kl. 23:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.