Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Er þetta ekki örugglega skref í rétta átt fyrir lýðræðið?

Þegar maður les reglur Ríksendurskoðanda um reiknishald stjórnmálaflokka, hnýtur maður óhjákvæmileg um eitt og annað sem ljóst má vera að verður flokkum og fólki erfitt í raun. T.d. ef það er lagt saman að meta þarf alla aðstöðu, afslætti og ívilnanir til markaðsvirðis og einnig að þakið 300 þúsund gildi sameiginlega um alla tengda aðila, og því um t.d. fjölskyldur og skyldfólk allt sem þær eiga og jafnframt er notað til annarrar atvinnutengdrar starfsemi sem og allan rekstur sem þær tengjast.

Yngri börnin Einar og HafdísHrein sjálfboðaliðavinna er undanskilin og það sem sjálboðaliðar leggja til og er ekki í annan tíma notað í tengslum við atvinnu, en allt sem flokksmenn með rekstur eða atvinnutengd tól eða aðstöðu og vildu nýta í þágu flokksins í kosningum verður að meta á markaðsverði sem styrk og leggja við framlög annarra skyldra aðila sem samtals mega ekki fara yfir 300 þúsund.

T.d. ekki viss hvort þetta bannar Mogga í reynd að gefa stjórnmálflokkum meiri afslátt af auglýsingum en í öðrum viðskiptum umfram alls 300 þúsund á hvern, - hræddur um að svo sé. - Og svo verða þeir sem eiga Moggann að fá að vita til hve mikils styrkjar afslættir hans eru metnir því þeir mega hvorki persónulega, fjölskylda þeirra né aðrir tengdir þeim eða rekstur sem þeir ráða styrkja flokk að meðtöldum afslætti Mogans yfir 300 þúsundin alls. -Þannig má í það minnsta skilja reglurnar.


mbl.is Reglur gefnar út um reikningshald stjórnmálaflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklar gleðifréttir ...

Frábært! Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fjölga dagrýmum aldraðra um 75. Það eru miklar gleðifréttir sérstaklega er þörfin feikna knýjandi fyrir heilbilaða og aðra Alzheimerssjúka, og ráðherra reiknar með að mest fari þangað eða 44 rými ekki veitir af. FRIDUHUS_UppiDagdvöl heilabilaðra er einnig kölluð dagþjálfun og er mikil stoð fyrir alla, bæði einstaklingana sjálfa, fjölskyldur þeirra og heilbrigðiskerfi þegar þannig Alzheimerssjúkir og heilabilaðir fá þá örvun og þann stuðning sem þarf til að geta búið heima sem lengst við alvöru líf og tilveru. Dagdvalarhúsin eins og Hlíðabær og Fríðuhús hafa reynst feiknavel og aukið lífsgæði sjúklinga og aðstandenda gríðalega, en jafnframt stytt mikið og létt þann tíma sem heilbrigðiskerfið annars hefði þurft að annast sjúklingana af fullum þunga.
mbl.is Fjölga á dagvistarrýmum aldraða um 75
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti komið ICELANDAIR á kaldan klakann

Flugvel,Jokull og KirkjanNú væri betra ef við værum komin í ESB.

Nýi flugmálasamningur ESB og USA merkir auðvitað gjörbreytingu í samkeppnisumhverfi Icelandair. Í stað þess að Ísland hafi miklu betri og frjálsari samning við USA fyrir hönd sinna flugfélaga eins og verið hefur um áratugi, er ESB nú með með frjálsari samning en Ísland t.d. mega nú hvaða flugfélög ESB sem er ekki aðeins fljúga til hvaða borgar sem er í USA á hvaða skilmálum sem þau vilja heldur líka á milli hvaða borga sem er í USA þ.e. stunda innanlandsflug þar.

Fyrirhyggjuleysi okkar að sækja ekki um ESB aðild er algjört og á örugglega eftir að koma fram í stærri málum en þessu á næstu árum.


mbl.is Flugsamkomulag milli Bandaríkjanna og ESB tekst á loft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær litlar kók á dag í 50 ár eru 6.205.000,- kr.

Eldgígur mokaður í burtuÞar sem við erum ekki vön að reikna kostnað á 50 ára grunni er slík framsetning villandi eins og tölurnar eru settar fram samkvæmt frétt Mbl.is (sjá næsta blogg hér fyrir neðan). Fáa grunar t.d. að tvær litlar kók á dag í 50 ár kosti 6.205.000 kr. þ.e. yfir sex milljónir króna.

Á 50 árum eftir lagabreytingu sem ekki fór í gegn

Keilir og AlcanHér eru settar fram í frétt Moggans (sjá neðst) heildar tekjur Hafnfirðinga næstu 50 ár af álverinu og þessir útreikningar byggja á lagabreytingum sem ekki urðu. Einnig undarlegum forsendum eins og yfir 560 milljón kr sparnaði á landi vegna þess að háspennulínur yrðu settar í jörðu, en vel að merkja þá þarf þess ekki ef álverið fer, og svo er tekið fram að tjón af mengun er ekki áætlað og því ekki tekið með í dæmið á móti.

Hafnarfjörður hefur fram til þess borið skarðan hlut frá borði því þegar ÍSAL var reist sá þjóðin svo miklum ofsjónum yfir mögulegum gróða Hafnarfjarðar af álverinu að sett voru sérstök lög til að ríkið en ekki Hafnarfjörður nyti mest allra skattteknanna af Ísal. Því hafa það aldrei verið nema smápeningar sem Hafnarfjörður hefur haft í tekjur af álverinu og álverið átti höfnina fyrstu 25 árin og því engar tekjur þaðan.

Af sömu ástæðu var lögð sérstök áhersla á að allt höfðuborgarsvæði nyti atvinnutækifæranna í álverinu og því var frá upphafi sett á öflugt rútukerfi til að sækja starfsmenn ef öllu höfuðborgarsvæðinu til að starfa þar. Einstaka verktakar hafa svo orðið feikna ríkir af viðskiptum við álverið og haslað sér völl í öðrum stórviðskiptum í framhaldinu, - það eru ekki Hafnfirðingar eftir því sem ég kemst næst þó svo ég véfengi ekki að hafnfirsk fyrirtæki hafi umtalsverð viðskipti við álverið.

Punkturinn er þó sá að Hafnarfjörður hefur ekki notið sem skyldi arðs af álverinu sem þó mengar loftið þeirra brennisteini og flúor alla daga. Heldur hefur arðurinn skipulega verið fluttur framhjá Hafnarfirði. Ef álverið færi eða fengi ekki að stækka er enginn vafi á að annað álver fengi að rísa í staðin t.d. fyrir utan Keflavík til að nota þá orku sem losnaði, og þau fyrirtæki sem hafa reynslu af að þjónusta álver fengju örugglega sitt þar ef þau vildu.


mbl.is Tekjuauki Hafnfirðinga af stækkun álvers 3,4-4,7 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að valda öllum þessum vatnstjónum?

Sindrar í ÖxaráMerkilegt hve mörg vatnstjón hafa orðið nú á örfáum dögum, nú síðast í húsi HR sem áður var hús Morgunblaðsins. Ekki er augljós sameiginleg orsök - nema þá ef vera kynni að bilunin í dælubúnaði Orkuveitunnar um daginn þegar eldingu laust niður í rafkerfið, hafi valdið svona miklu álagi á veitukerfið að í kjölfarið hrökkvi í sundur veikir hlekkir þó svo nokkrir dagar líði. Ætli þetta verði kannað í því ljósi? Kannski brustum lagnir ,,næstum því" víða sem svo verða að gefa sig alveg næstu mánuði eða ár?
mbl.is Tölvuvert tjón á loftum í húsi HR vegna vatnsleka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Norðmönnum

Ég skil aldrei afhverju Ísraelar og Bandaríkjamenn neiti ekki aðeins bæði að viðurkenna tilverurétt Palistínu og ríkisstjórn Palistínu, heldur líka að Ísrael þurfi að fara að samþykktum Sameinuðu þjóðanna þá sjaldan USA hefur ekki eitt ríkja beitt neitunarvaldi, en gera það svo að tilliástæðu til að svelta Palistínumenn að þeir viðurkenni ekki Ísraelsríki, ríkið sem hersetur þá, rænir þá löndum og sveltir börnin þeirra.

 

Viðbót um Guðs útvöldu:
Kirkjan og norðurljosin Hugmyndin um Guðs útvöldu er afar hættuleg venjulegu fólki því hún stendur í vegi fyrir því að það fólk geti sett sig í spor annarra sem annars er mikilvægasta þroskastigið og kemur oftast með unglingastiginu, að geta sett sig í spor annarra og fundið þeirra sársauka og þeirra tilfinningar. Ef hinsvegar því er bætt við uppeldið að aðrir séu öðruvísi, óæðri og ekki eins þóknanlegir Guði stendur það í vegi þess að viðkomandi geti meðtekið þennan þroska með eðlilegum hætti. Þegar svo við það bætist að trúarbragðahöfundurinn Móse segir þjóð sinni að gjöreyða borgum sem hún vilji leggja undir sig, vægja engum og þakka Guði fyrir ræktarland sem þeir hafi ekki sjálfir sáð, hús sem þeir hafi ekki sjálfir reist, og fagra hluti sem þeir hafi ekki sjálfir smíðað, þá í það minnsta er þeim ekki hollt að við hin tökum undir um að tilfinngar og réttindi Palistínumanna séu léttvægari en Ísraelsmanna. - Ég held að jafnvel Guð sé ekki sáttur við það.


mbl.is Norðmenn aflétta viðskiptabanni á heimastjórn Palestínumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stoltur af börnunum mínum í dag

SigurvegararYngri sonur okkar Einar Axel fékk 100 þúsund krónur í verðlaun fyrir fyrsta sæti í stæðrfræðikeppni framhaldsskólanna í gær, en fjögur eftsu sætin tryggja jafnframt sæti á Ólympíukeppninni í stærðfræði  sem verður í Víetnam í sumar. Einar er á þriðja ári í sínum menntaskóla og það verður nú í þriðja sinn í röð sem hann öðlast sæti í Ólympíukepninni. Fyrst í Mexikó en þar gekk einmitt yfir fellibylurinn Emily af styrknum 4-5 daginn áður en átti að halda heim, sama sumar og Katrín fór yfir New Orleans. Áður náðu þeir þó að sjá píramída Mayanna og margt fleira merkilegt. Í fyrra var keppnin í Slóveníu og var bæði Alpanna og Adríahafs vitjað og ísl liðið náði besta árangri sínum fram til þessa, og svo núna í Víetnam. Annars náði hann einnig ólýmpíusæti í eðlisfræði sem haldin verður í Íran í sumar en þar sem keppninar fara fram samtímis verður hann að velja aðra þeirra og fyrsta sætið í stæðrfræðinni fær að ráða því.

Sl. kvöld var líka mikil lukka á frumsýningu í Hagskóla þar sem þau yngri dóttir mín Hafdís Helga með Oddi vini sínu voru aðstoðarleikstjórar. Fyrir aðeins mánuði fóru þau með burðarhlutverk í uppfærslu Hamrahlíðarskólans, en auk þess hefur Hafdís verið með burðarhlutverk í allmörgum ungmennaleiksýningum öðrum, og annast götuleikhús með fleirum, en fyrst þó sem Sól litla í kvikmyndinni "Íslenski draumurinn".

Eldri dóttirin Jórunn Edda er við heimspekinám á Ítalíu og stendur sig frábærlega, var með 30, 28 og 30 af 30 mögulegum á munnlegum heimspekiprófum á ítölsku, þar sem bekkurinn (háskólinn) situr og hlustar á meðan prófað er. Þannig var það víst líka hér fyrir 40 árum. - En Ítalía er svo sannanlega (hugar)heimur útaf fyrir sig.

Haukur Már Helgason eslta "barnið" okkar 28 ára var fyrir nokkru að tryggja heimsókn heitasta heimspekingsins í dag Slavoj Zizek á næstu vikum, en Haukur þýddi eftir hann Órapláguna eða The Plague of Fantasies, sem vonandi nær að koma út í einhverju formu í tenglsum við heimsóknina.

 Eitt sinn sagði við mig vitur kona: „ef foreldrarnir eru ekki montnir af börnunum sínum er það enginn, - og einhver verður að vera það“.  - Ég get ekki neitað því að montið krefst útrásar í dag.


Hæfilega stór Sjálfstæðisflokkur væri 25%

A_fors17juni2004_03 Með fullri viðringu fyrir hægri mönnum á Íslandi, svo ekki sé talað um honum Tryggva afa mínum heitnum sem var ekta fínn sjálfstæðislokksmaður í gegn, þá væri ágætt að íslenskt stjórnmálalíf þróaðist þannig að 25% væri sigur fyrir íslenska hægri flokkinn. Til þess að svo geti orðið þarf þó Samfylkingin að verða miklu stabílli og formaður hennar á hverjum tíma og forysta að hafa traustari pólítska sjálfsmynd af sér og flokknum til að telja sig ekki þurfa að hlaupa sífellt eftir dægurmálum en gleyma grundvallaratriðunum: "Frelsi, jafnrétti, bræðaralag" og þá er ekki bara átt við jafnrétti kynjanna, og með bræðralagi að sjálfsögðu allt verlferðarkerfið í sinni bestu mynd.
mbl.is Hægrimenn sigurvegarar kosninganna í Finnlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattaloforð svikið - Áfall fyrir álverssinna

Álver í mótvindiÞað hlýtur að vera talsvert áfall fyrir álverssinna að álverinu sé ekki gert unnt að efna loforð sitt um að greiða sín gjöld til Hafnarfjarðar eins og önnur fyrirtæki í bænum. Það er nefnilega þannig að það er langt í frá að Hafnarförður hafi fengið af álverinu gjöld eins og af öðrum fyrirtækjum. Það þótti á sínum tíma einmitt ekki réttlátt að Hafnarfjörður græddi svo neinu nam á álverinu gróðinn ætti að ganga til ríkisins og því voru sett sér lög sem færðu ríkinu mest allar skatttekjur sem hefðu átt að ganga til Hafnarfjarðar ef sömu reglur giltu um álverið og önnur fyrirtæki.

Reyndar er merkilegt að álverið hefur ekki lagt sérstaklega til samfélagsmála í Hafnarfirði fyrr en ljóst var 2002 að Hafnarfjarðarbær ætlaði að leggja stækkunina í dóm bæjarbúa, en hefur tekið vel til hendinni síðustu ár t.d. með stuðningi við íþróttaélögin, og Björgvin Halldórsson.

Á nokkuð að bíða og sjá hvort Hafnfirðingar samþykki örugglega? - Reyndar er ég viss um að stækkun álversins verður samþykkt, hræðslupólitíkin leiðir óhjákvæmilega til þess að margir kjósendur vilja ekki taka ábyrgð á að álverið fari heldur láta öðrum það eftir og greiða því stækkun samþykki eða sitja heima.


mbl.is Sól í Straumi: Fjárhagsleg rök fyrir samþykki stækkunar Alcan brostin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband