Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Vottar um að stjórnarandstöðuflokkarnir hafi brugðist

MyndTekin2005-10-25-155325Á elleftu stundu?

Sú staðreynd ein að nægur hljómgrunnur hefur verið fyrir sérstöku framboði þeirra sem mest þurfa á stuðningi velferðarkerfsins að halda, svo að nú leggur fólk á sig stofnun sérstaks flokks, sýnir að ekki aðeins hafa stjórnarflokkarinr brugðist í þróun og viðhaldi velferðarkerfisns heldur ekki síður stjórnarandstöðuflokkarnir, því enginn straumur er til þeirra vegna þessara mála.

Sorglegast þykir mér að jafnaðarmannaflokkurinn Samfylkingin skuli ekki nú vera augljós valkostur allra þeirra sem eru að leggja mikið á sig við þessa flokksstofnun og þeirra sem hafa undanfarið í skoðanakönnunum talið líklegt að þeir styddu svona framboð. Ég held reyndar að þegar til kastanna kemur muni svona framboð ekki fá brautargengi, ekki síst vegna óteljandi kerfislægra hindranna, en það breytir ekki því að það eitt að það skuli nú vera til og hafa mælst með stuðning er áfellisdómur um Samfylkinguna. þrátt fyrir frábæra framstöðu einstakra þingmanna hennnar eins og þeirra Ástu Ragnheiðar og Jóhönnu í málaflokknum þá er það ekki nóg.

Samfylkingin hefur allt í sínu farteski til að geta verið velferðarflokkurinn, en verður samt að ákveða að gera það og kynna af þekkingu og krafti hvað hún hefur fram að færa í þessum málaflokki þannig að augljóst sé að formaður og þingflokkur allur sé afar vel inní grundvallarmáli jafnaðarmanna velferðarkerfinu. Það að aðeins einn og tveir þingmenn sinni málaflokknum án augsýnilegs og viðvarandi bakstuðnings formanns og annarra þingmanna dregur fram hið gagnstæða að þingflokkurinn og formaðurinn séu ekki vel að sér um málefni helstu skjólstæðinga velferðarkerfisins. -Hvort sem svo er í raun eða ekki.


mbl.is Ný stjórnmálasamtök stofnuð í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nóg að setja 7.000.000.000.000 W st. háspennulínur í jörðu?

DSC_6955

DSC_6930Eftir háspennulínunum til stærsta álvers í Evrópu sem rísa á í Straumsvík verða fluttar a.m.k. 7.000.000.000.000 W st af rafmagni eða 7.000 GW st  á ári. Vissulega hverfur sjónmengunin ef háspennulínur sem bera miklu meira rafmagn en öll þjóðin notar þess utan eru settar á jörðu, - en er það nóg?
Þarf ekki líka að fara með þær í góðan sveig útfyrir alla væntanlega  og núverandi íbúðabyggð og útivistarsvæði? Í jörðu gætu þær seinna verið 1/2 til 1metra undir fótum okkar, barna okkar og barnabarna og vistsvæðum þeirra án þess að við hefðum hugmynd um það með tilheyrandi rafsegulsviði í veldishlutfalli við nálægð línunnar, en á meðan þær eru á möstrum eru þó nokkuð fleiri metrar upp í þær þegar þær eru næstar okkur segulsviðið því miklu minna, og þær eru sýnilegar og augljóst hvar þær liggja  fyrir þá sem kjósa að forðast þær, sjá íslenskan vef sem fjallar m.a. um efnið og ég rakst á hér: http://frontpage.simnet.is/vgv/. 


Ekki veitir af

 - cc118Það er spurning hvort Neytendasamtökin hafi ekki verið að standa sig því allir vita jú að stöðugt hefur færst í vöxt hin seinni ár að vörur fara beint á "afsláttar" og "tilboðsverð" þannig að engin leið er að tala um eitthvað annað upphafsverð en tilboðsverðið. Það verður að teljast undarlegt að Neytendasamtökin hafa ekki látið þessa viðskitpahætti til sín taka opinberlega.
mbl.is Segja afsláttarmálningu aldrei hafa verið selda á upprunalegu verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsvélin verður ekki stöðvuð svo glatt

bloodied_iraqichildÞað er nú málið að þegar önnur eins stríðsmaskína hefur verið ræst eins Bandaríkin eru nú að meðtöldum öllum "föðurlands"-áróðrinum verður hún ekki svo auðveldlega stöðvuð. Þegar það jafnast á við föðurlandssvik hjá stórum hluta bandríkjamanna að spyrja spurninga um stríðið og allt það sem hefur gerst síðan 11. september 2001 verður afar erfitt að stöðva þessa miklu maskínu, og jafnvel meiri hætta á að hún færist í aukana og snúi sér að nýjum "óvinum" en að takist að stöðva hana.

Athugið þessa mynd sem kom upp á efstu síðu þegar ég "Gúgglaði" myndir og Íraksstríðið saman og svo hvernig hún er birt á vef BBC hér, þ.e. BBC birtir myndina en sýnir ekki að fóturinn er farinn.


mbl.is Hvíta húsið ítrekar fyrirheit um að beita neitunarvaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kópavogsbúar hverfa af þingi

tekin2003-12-10-151936bÞað rann upp fyrir mér ljós þegar ég var að vafra í gegnum myndasafnið mitt og rakst á þessa mynd sem ég tók af þingmönnum úr Kópavogi sem þá sáta á þingi fyrir rúmum 2 árum að ljóst er að aðeins einn þeirra sex sem eru á myndinni verði áfram á þingi.

Sú var tíð að Rannveig Guðmundsóttir var eini þingmaður Kópavogsbúa  þó Kópavogur væri næst stærsta sveitarfélag landsins. Reyndar eru allar líkur að á næsta kjörtímabili verði tveir úr Kópavogi þar sem  Ármann Kr Ólafsson er í 3ja sæti hjá Sjálfstæðisflokknum og Katrín Júlíusdóttir er nú í öðru sæti hjá Samfylkingunni.

Sem hlutfall af íbúafjölda ættu jafnan að vera 5-6 þingmenn Kópavogsbúar.

Frábært að Hafnfirðingar fái að tjá sinn vilja

Álver í StraumiÞrátt fyrir gallana á framkvæmd  íbúalýðræðis vegna stækkunar álversins, sem við bæði getum lært af og lagað, þá er frábært að að Hafnfirðingar fái að segja sjálfir hvort þeir vilja að risaálver 10 falt stærra en upphaflega var byggt þar, sé í miðju framtíðar byggingasvæði þeirra.

Hefðu Hafnfirðingar á sjöunda áratugnum þegar afar umdeilt var að byggja 45 þúsund tonna álver í Straumsvík getað hugsað sér að 10 álver af upphaflegri stærð væru risin á Straumsvíkurblettinum 40 árum seinna með alls 460 þúsund tonna framleiðslugetu, - og byggðina allt í kring?

Það þarf að halda því til haga að Ísal hefur alltaf verið með arðbærustu álverum eigenda sinna á hverjum tíma. Þess vegna hefur aldrei komið til greina a loka því jafnvel þegar mest verðhrun og samdráttur var í álframleiðslu og fjölda álvera um heiminn var lokað. Það verður því að teljast afar ósennilegt að rétt sé að allt í einu sé það orðið svo óarðbært að því verði lokað ef ekki fæst að gera það að stærsta álveri Evrópu.

Hafnfirðingar fá nú að ákveða sjálfir hvort þeir vilja álverið til sín ef á annað borð allar aðrar nauðsynlegar ákvarðanir falla á sama veg. Hafnfirðingar eru ekki að taka afstöðu til virkjanna því við vitum að ef þeir hafna álverinu rís annað annarsstaðar í staðinn ef á annað borð verður haldið áfram á þeirri braut sem núverandi stjórnvöld reka.

Það er í þingkosningunum sem við kjósum svo um það hvort við völd verða þeir sem vilja nota orkuna til álframleiðslu og virkja sem víðast sem fyrst. Ákvörðun Hafnfirðinga breytir í raun engu um þá stefnu. Þeir geta verið á móti virkjana- og álversstefnunni fyrir landið í heild þó þeir vilji stækkunina til Ísal ef á annað borð á að auka álframleiðlsu landsins. - Í því er ekki mótsögn, þó ég persónulega haldi að Hafnfirðingum farnaðist best ef þeir höfnuðu stækkun álverins og það færi í burtu innan ekkert alltof langs tíma, það verða næg not fyrir orkuna.


mbl.is Stefnir í tvísýnar álverskosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gildir þá stjórnarskráin ekki? - Erum við eins og aðrir talibanar?

Jón SigurðssonAuðvitað er þjóðsöngur ekkert nálægt því eins "heilagur" og grunndvallar höfundar og helstu helgitákn trúarbragðanna, en samt er hér á Íslandi til fólk sem verður rautt af reiði og vísar í lagabókstafi um að fangelsa beri fólk fyrir að leika sér með þjóðsönginn okkar. -Þar eru þó Ameríkanar okkur fremri að langt er síðan Jimi Hendrix lék sér með þeirra þjóðsöng án þess að nokkrum málsmetandi dytti í hug að fangelsa hann fyrir vikið.

Annars taka mál- og tjáningafrelisákvæði stjórnarskrár (sem og mannréttindasáttmála sem við erum aðilar að) fram svona þröngsýnislögum ef við túlkum mannréttindaákvæði eitthvað líkt og gert er í öðrum vestrænum ríkjum. 

- Eru menn búnir að gleyma því að Árni Johnsen gerði og gaf út sína sérútgáfu af þjóðsögnum sem átti a vera auðveldari til "alþýðusöngs" í grænum brekkum en orginalinn?


mbl.is Spaugstofumenn brutu lög um þjóðsönginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennum stelpum (og strákum) að taka áhættu.

Miklabæjar-SólveigFyrir utan það að karlhormónið rekur karla til áhættusækni og oft úr hófi fram, þá held ég að enn sé eitthvað í menningu okkar og uppeldi sem beinlínis letur stelpur og ungar konur til að taka ,,eðlilega" áhættu. Þetta segi ég eftir að hafa fylgst með af hliðarlínunni þeim krökkum sem eru að keppa í stærðfræði- og eðlisfræðikeppnum framhaldsskólanna á landsvísu til að vinna sér rétt til þátttöku í alþjóðlegum mótum svo sem Olympíukeppnum. All nokkur dæmi get ég nefnt um stelpur sem höfðu alla burði til að komast í hóp þeirra fremstu en hafa kosið að draga sig til baka á miðri leið og láta ekki á það reyna til fulls. Á sama tíma eru stelpur jafnan með hærri meðaleinkunn í samræmdum prófum í stærðfræði og líklegri til að vera með hæstu einkunn en strákar en sjást sv varla í þessum keppnum. - Það er ekki alveg eðllegt er það?

Reyndar veitir svo sumum strákum ekki af að læra að takmarka áhættu sína, og ekki má gleyma að margir eru líka í þeirra hópi sem þora vart að rísa undir sjálfum sér þar sem þeir hafa þó hæfileika og  burði til, svo líklega veitir ekki af að kenna báðum kynjum að meta áhættu og taka hana þegar eðlilegt er að láta reyna á hvað maður getur.


mbl.is Fáar konur en margir ómenntaðir taka þátt í frumkvöðlastarfsemi á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagra sumarnótt hjá álverinu í Hafnarfirði

Fagra sumarnóttÞegar lygnt er í veðri á nóttunni leggst mengunin yfir landið í kring eins og sést vel á þessum myndum. Ætli fólk geri sér grein fyrir að álverið mengar stundum miklu meira en að jafnaði, og að það gerist oft á nóttunni þegar fáir veita því athygli, en fólk sefur rólegt undir opnum svefnherbergisgluggum í nýju húsum í hverfunum sem risið hafa síðustu ár samkvæmt skipulagi sem grundvallað er á að mengunarvarnir álversins séu alltaf á? Staðreyndin er hinsvegar sú að við og við er slökkt á lofthreinsibúnaðinum vegna viðhalds og viðgerða, - og næturvaktin virðist henta vel til þess. Fagra sumarnótt2

Þessa sumarnótt þegar ég tók þessar ljósmyndir lagðist mökkurinn þéttur frá álverinu yfir svæðin sem verið verið að byggja og þaðan langt upp til fjalla. Ekki veit ég hvað var að gerast hjá álverinu en þeir sem fylgjast með vita að stundum leggur mikla og þétta mengun frá álverinu þó oftast sé hún ekki svona sýnileg.

Á þessu súluríti af vef Sól í Straumi  kemur fram með grænum lit mengun álversins 2005, bláu súlurnar sýna hvað álverið og Hafnarfjarðarbæ langar til að stefnt sé að eftir stækkun, en rauðu súlurnar sýna hvað ALCAN raunverulega má menga eftir stækkun, þ.e. hina formlegu mengunar-heimild Alcan samkvæmt starfsleyfi sem gildir til 2020. mengunarsamanburdhur-iii


Ætti að vera afdráttarlausari

Stórhættulegir útleningar1Það er full ástæða til að gera Frjálslynda flokknum skýra grein fyrir að með því að taka upp stefnu sem beinlínis elur á útlendingahræðslu og fordómum svo ekki sé talað um sleggjudómum í garð trúarhópa, kynþátta og þjóða, marka þeir sér stað í litrófi stjórnmálannna þar sem öðrum flokkum er ógerlegt að starfa með þeim, og skrifa þannig undir fordómanna. Það er engin tilviljun að í mannréttindasáttmála Evrópu sem byggður er á mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna er ríkjum skylt að tryggja málfrelsi en jafnframt skylt að setja tvennskonar höft á það frelsi þ.e. að ríki skulu setja í lög að bannað sé stunda stríðsæsingaáróður og bannað skuli að lítilsvirða hópa á grundvelli þjóðernis, kynþáttar og trúarbragða. Ástæða þess er ekkert minni en að mestu fjöldamorð mannkynssögunnar og hverskyns aðrar sjálfskapaðar hörmungar mannsins hafa grundvallast á slíkum áróðri sem ef eitthvað bjátar á reynist jafnan auðvelt að glæða og kynnda undir.
mbl.is Telur skoðanir oddvita frjálslyndra ekki góðan grundvöll til samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband