Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vodafone.is rænt af Kúbverksum tölvuþrjótum

Þurfti að fara inná vodafone.is undir kl 01.00 til að senda SMS en þá blasti við þessi undarlega og óhuggulega sjón.

Þ.e. þessi skjámynd hér til hliðar í stað heimasíðu Vodafone og tilkynnti að kúbverskir tölvuþrjótar hefðu rænt léninu vodafone.is. Ekki aðeins er myndin óhugguleg heldur að þetta merkir að varnir vodafone.is sem hýsir tölvupóstinn okkar og heimasíður fjölmargra eru ekki traustari en svo að unnt var að ræna þeirra eigin heimasíðu, - eða er það ekki? Myndina má stækka upp í fulla stæðr með því að smella á hana og svo aftur og svo aftur. Þá sést t.d. að slóðin er rétt vodafone.is , ég ætlaði vart að trúa því sjálfur.


Er það nú allt... rétt þriðjungur af meðaltali heimsins?

Brimið brýtur ströndinaí öllu talinu um stórkostlegan hagvöxt á Íslandi kemur á óvart hér að samkvæmt þessari frétt frá Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) fyrir árið 2008 náum við rétt góðum þriðjungi af meðal hagvexti heimsins sem er 4,9% þar sem gert er ráð fyrir aðeins 1,9% hagvexti á Íslandi, en 12% viðskiptahalla bæði í ár og 2008 - sem er svakalegt. -Samt er innflutningi vegna framkvæmdanna fyrir austan að ljúka og útflutningur að hefjast, við erum í góðærinu miðju samkvæmt kosningaáróðri ríkisstjórnarflokkanna og aldrei haft það betra, -en náum ekki heimsmeðaltali.
Hinu hræðilega Evrusvæði er spáð 2,3% hagvexti eða talsvert meiri hagvexti en okkur; 2,3% í Japan og 2,2% í Bandaríkjunum. Þ.e. við náum ekki því sem helstu viðskiptaheildir heims hafa og draga okkur gjarnan sjálfkrafa með sér vegna mikilla viðskipta okkar við þær. - Það er nú allt og sumt -árið sem Alcoa fer að flytja út ál með fullum afköstum.


mbl.is Mesta hagvaxtarskeiðið í rúma þrjá áratugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgólfur Guðmundsson er ótrúlegur höfðingi

Björgólfur1Það frábærasta við að vera virkur þátttakandi og starfa á vettvangi samtaka öryrkja og sjúklinga er að uppgötva og kynnast öllu því fólki sem af ósérhlífni og óeigingirni er þrátt fyrir allt tilbúið að leggja þeim lið sem á þurfa að halda. Auðvitað er misjafnt hvað hver og einn getur lagt að mörkum af tíma og fé, og eins og með fátæku ekkjuna í dæmisögu Krists eru sumir þeirra sem leggja smátt til, samt að gefa allt sitt, með það í huga að margt smátt verður eitt stórt.

Af öðrum höfðingjum ólöstöðum er samt vart nokkur annar eins höfðingi og Björgólfur Guðmundsson. Þegar aðrir skemmta sér við að kaupa klukkutíma af Elton John fyrir 75 milljónir eða hálftíma af Tom Jones fyrir 20, þá boðar Björgólfur 75 líknarsamtök á sinn fund og gefur hverju 1 milljón króna eða alls 75 milljónir króna og hrindir af stokkunum sérstakri þjónustu bankans síns undir kjörorðunum "legðu góðu máli lið" til að allir þeir sem hafa smávegis fram að færa geti gert það með greiðum og einföldum hætti beint af reikningum sínum án neins kostnaðar, með það í huga að margt smátt geri eitt stórt.

Í morgun var ég við móttöku Björgólfs og Landsbankans að þessu tilefni. Svo í dag nýt ég þess að dáðst að Björgólfi Guðmundssyni, karakter hans og höfðingsskap.


Ég vildi að Framsóknarflokkurinn væri við völd...

DSC_0826Fyrir utan stóriðjustefnu Framsóknar er fátt hér í kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins sem ekki er hægt að taka heilshugar undir og bæta við "ég vildi að þessi flokkur hefði verið við völd undanfarin ár". - En bíðum nú við það hefur hann einmitt verið, hvernig á þá að vera hægt að taka mark á svona plaggi sem lýsir fullkomlega allt öðrum hugmyndum en praktiseraðar hafa verið af sama flokki í 12 ár.

PS Þetta er kannski ekki alveg réttlátt hjá mér í garð Framsóknar án þess að minnast þess að einstaka þingmenn og ráðherrar Framsóknarflokksins hafa vakið sérlega aðdáun mína fyrir ákveðin verk og hugarfar sem samt hefur ekki náð að móta yfirbragð ríkisstjórnarinnar í heild. Sumt jafnvel ekki náð athygli.  Svo fátt sé nefnt má nefna að báðir Páll Pétursson og Finnur Ingólfsson áttu meiri heiður og þakkir skyldar en þeir hlutu fyrir að taka á málum skuldugra fjölskylda, m.a. með stofnun ráðgjafastofu heimilanna og mikið fleiru, Jón Kristjánsson ráðherrann hæglyndi var allra ráðherra duglegastur að mæta allstaðar þar sem mál sjúklinga og öryrkja voru til umræðu og stoppa við og hlusta en ekki bara sýna sig, Halldór Ásgrímsson hafði þrátt fyrir allt kjark til að taka ESB mál á dagskrá þó sumir samráðherrar vildu ekki ræða þau, og auðvitað er ekki réttlátt að ekkert sé virt við Framsókn hve duglegur flokkurinn hefur verið við að setja konur í ráðherrastöður. - Það breytir þó ekki því að heildar yfirbragð ríkisvaldins sl 12 ár þar sem Framsókn hefur haft hlming ráðuneyta hefur verið afar hægrisinnað, andsnúið samhjálp, og nú er mál að linni.


mbl.is Framsóknarmenn boða áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir: 50 milljarða kostar að ná fyrri skattleysismörkum

Gamli maðurinn og þinghúsiðÓmar kom sterkur út úr Kastljósþættinum í kvöld, sem og Steingrímur J, Ingibjörg stóð sig mjög vel þegar leið á en verr í upphafi, en Ingibjörg S_02Guðjón stóð sig bara illa og Jón stóð sig alls ekki neitt. Geir Haarde hefur vaxið meira sem foringi en ég átti von á sem gleður mig um leið og ég hef svolítið blendnar tilfinningar gagnvart því þar sem ég tel mikilvægt að skipt verði um ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Vopnin snérust þó í höndum Geirs þegar hann hafði spurt Ómar hvort hann gerði sér grein fyrir hversu feikna dýrt væri að hækka skattleysismörk í 130 – 150 þúsund, það kostaði yfir 50 milljarða en Ómar skaut því að á móti að fyrst við höfðum efni á jafngildi þess fyrir 12 árum, hlytum við að hafa efni á því núna (eftir allt góðærið).

Þá segir þetta okkur nákvæmlega hvað þeir hafa hækkað mikið álögur á lægsta hluta tekna á þessum tíma, eða samkvæmt orðum Geirs um 50 milljarða króna.

Frjálslyndir styðja stóriðjuþensluna en eru á móti útlendingunum sem þenslan þarfnast.

Umræður flokksforingjanna í Kastljósi í kvöld marka upphaf hinnar formlegu kosningabaráttu. Um margt óljós og óvenjulega staða flokkanna samkvæmt skoðanakönnunum setur óhjákvæmilega svip sinn á kosningabaráttuna, en einnig er augljóst að þau mál sem litlu flokkarnir Frjálslyndiflokkurinn og Íslandshreyfingin hafa sett á oddinn móta núna umræðuna. Stóriðjumál og útlendingamál voru meginmál umræðunnar,  en lítið sem ekkert fór fyrir menntamálum, velferðarmálum eða samgöngumálum svo eitthvað sé nefnt. Í þessum málaflokkum kristallast þó hrópandi mótsögnin í málflutningi FF sem setur sig á móti útlendingunum en með stóriðjunni og þenslunni.
En eins og allir vita sem vilja er þenslan og stóriðjuframkvæmdirnar helsta ástæða eftispurnar eftir erlendu vinnuafli. Í raun merkir þetta að annaðhvort meinar FF ekki það sem þeir segja eða þeir vita ekkert hvað þeir eru að segja. Þeir geta ekki  stutt stóriðjuframkvæmdir en lokað á vinnuaflið sem framkvæmdirnar og þenslan kallar eftir. Það leiðir augljóslega af sér óðverðbólgu eins og þensla gerði á fyrri tímum, þ.e. víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags vegna umframeftirspurnar eftir vinnuafli.

ÍH (Ómar) og FF stýra umræðunni

Óháð spurningunni um fylgi flokkanna sem þrátt fyrir allt er ekki alltaf aðalatrið þá sakna ég þess núna að flokkurinn minn Samfylkingin, jafnarðamannaflokkurinn á Íslandi sé ekki að stýra umræðunni, í það minnsta til jafns við þá sem bera fram vanheilugu útlendingamálin og háheilögu umhverfismálin, og þá helst með sterkri innkomu um “endurreisn velferðarkerfisnins” eða viðlíka. Afhverju er umræðan nú öll um FF og ÍH og þeirra málefni? -Af því þeir hafa sett málin á dagskrá knúið fram viðbrögð og fengið þau. Flokkur á umtalsvert erindi ef honum tekst að fá mál á dagskrá svo ekki sé talað um þegar öll umræðan og stefnuskrár hinna flokkanna taka mið af henni, en það er það sem Ómari hefur tekist.

Frelsi, jafnrétti, bræðralag
Það er í raun allt í lagi að Samfylkingin tapi fylgi ef hún er að mjaka grundvallarmálum áleiðis - ná árangri um það sem stjórnmál fjalla um þ.e. stefnumótun. Samfylkingin SV-kjd_01Eftir 12 ára íhaldsstjórn er fátt brýnna en endurreisn verlferðarkerfisins með klassískar hugsjónir jafnaðarmanna að leiðarljósi; frelsi, jafnrétti, bræðralag; þar sem bræðralag vísar til samhjálparinnar, samtryggingarinnar og velferðarkerfisins og hjartaþelsins sem að baki þess býr; jafnrétti, ekki bara stytting úr “jafnrétti kynjanna”, heldur á öllum sviðum; og frelsi sem okkur öllum ber, og ber samfélagsleg skylda til að skapa öðrum sem geta ekki notið þess vegna skorts á nauðþurftum og heilsu.

Verst væri að ná ekki af alvöru þessum grundvallarsónarmiðum inn á dagskrá íslenskra stjórnmála, og helst sem leiðarljós við ríkisstjórnarmyndun. 15, 20 eða 30 % er í raun aukatriði ef tekst að móta dagskrá umræðunnar og réttar ákvarðanir.


Önnur fyrirheit og loforð verða að skoðast í ljósi þessa

 - cv6730Ég á létt með að skrifa undir draumsýn um lága skatta, -en þó ekki fyrr en tryggt er að við sjáum vel fyrir samfélagslegum skyldum okkar við hvert annað, börnin, komandi kynslóðir, sjúka og aldraða, og byggjum upp sameiginlega grunnþætti svo sem samgöngur þannig að komi öllu samfélaginu sem best til áframhaldandi velfarnaðar. - Ekkert sérstakt bendir til að nú sé tími eða tækifæri til að lækka skatta. Í öllu falli væri skárra að borga niður skuldir og eftir það að safna og koma upp sjóðum en að lækka frekar skatta því skattalækkun nú ýtir undir þenslu sem er stóri vandinn sem við glímum við.

Örorkumatsályktunina, sem annað, verður því að lesa með formerkjum niðurskurðar.
Folk_6367Ríkisstjórnin samþykkti nýlega álit nefndar forsætisráðherra um nýtt örorkumat og endurhæfingu - án þess að því fylgdi neitt fyrirheit um fé. Þær ályktanir er reyndar mjög auðvelt að lesa þannig að  tilgangurinn sé sá einn að skerða bætur og svelta öryrkja til vinnu sem þeir "þykist" ekki geta unnið, þó svo forystu öryrkja langi til að skilja það öðruvísi og forsætisráðherra langi líka til að öryrkjar skiji það öðruvísi framyfir kosningar.

Álitið er í raun um tvennt, ný og mikil endurhæfingarkerfi sem kosta mikið og langan tíma tekur að koma á ef þeim verður nokkru sinni komið á og svo nýtt örorkumat og bótakerfi sem tæki gildi strax og felur m.a. í sér að 75% öryrki sem nú nýtur 100% bóta fær bara 75% bætur óháð því hvort einhver vill ráða hann í 25% vinnu eða ekki, auk þess sem fram að þessu hefur verið litið þannig á að 75% öryrki þurfi 25% orku til að annast um sjálfan sig, orka hans sé í öllu falli ekki til skiptanna með þeim hætti að hann geti beitt 100% orku 25% af tímanum (til fjórðungs vinnu) og því látið sér duga 0% orku 75% af tímanum. 

DSC_6046Hvað um það, loforð um skattalækkun núna segir okkur hvað raunverulega er á bak við önnur loforð og fyrirheit, þar á meðal hverju á að hrinda í framkvæmd af ályktun örorkumatsnefndar og hverju ekki þ.e. ekkert bendir til annars en að aðeins sé stefnt að niðurskurði útgjalda í þeim málaflokki í reynd.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur stefnir að frekari skattalækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hva...! Um helmingur þess sem Karl græðir við sölu Glitnis.

Þetta er þó ekki nema helmingur þess sem Karl Wernersson er sagður græða eftir viðskipti sín með bréf í Glitni sem samkvæmt fréttum hann stofnaði til fyrir rúmu ári. - Það sýnir kannski best hvað þetta er orðin mikil bilun hér á landi að Bandaríkjamenn undrast og hneykslast á upphæð sem er helmingur þess sem einn maður fær af viðskiptum á íslandi. Gróði Karls samsvarar eftir 10% fjármagnstekjuskatt að einhver hefði 4,5 miljónir króna eftir skatt í árslaun í 10 þúsund ár.

(Myndin er af Bjarna Ármannssyni máta gamlan bankastjórastól á sögusýningu Íslandsbanka)


mbl.is 27 milljarðar króna í árslaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölurnar í fréttinni standast ekki

Litið út til kjósendaI þessari frétt er sagt að 50% aðspurðra meldi sig jákvæða gagnvart Steingrími J Sigfússyni, en svo segir orðrétt aðeins neðar: "Af þeim sem voru jákvæðir gagnvart Steingrími J. Sigfússyni kváðust 93% ætla að kjósa Vinstri græna". - Þetta stenst ekki því ef það væri rétt ætluðu 93% af 50% að kjósa Vinstri græn eða með öðrum orðum að VG hefði 46,5% fylgi. Það eru þó varla réttar tölur - enn sem komið er í það minnsta.
mbl.is Geir nýtur mestra vinsælda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldur í Paradís! - Lærdómur af háhýsabruna á Spáni.

Mér þótti þau hálf hrikaleg húsin á Spáni sem voru í byggingu þegar ég kom þar fyrst sumarið 1976, múrsteinsgólf í margar hæðir á örmjóum steinsteyptm súlum og svo léttir hlaðnir útveggir. Það var svo ekki fyrr en eftir að Spánn og Portúgal gengu í ESB 1986 að teknar voru upp boðlegar byggingareglur þar og staðlar.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég varð vitni að því í ágúst 2005 að eldur varð laus í 20 hæða íbúðahóteli í Benidorm á Spáni. Á aðeins örfáum mínútum dreifðist eldurinn niður eftir húsinu með brennandi sóltjöldum og sundfötum af svölum á svalir frá 16. hæð og niður, eldurinn náði líka að teygja sig upp eftir húsinu. Sem betur fer var ekki vindur svo logandi klæðin dreifðust ekki mikið til hliðar.

Bruni í Playmon03Myndirnar sem ég hef sett hér inn í albúmið “Eldur í Paradís” sýna ef vel er að að gáð hvernig eldurinn dreifir sér, en einnig að þegar slökkviliðið kom á staðinn ná þeir strax að sprauta vatni á neðstu svalatjöldin og stöðva útbreiðsluna eldsins þar, þ.e. uppá 6. hæð en lengra náðu slöngurnar ekki að sprauta, og þó slökkvilið kæmi greinilega víða frá á þeim 5 klukkustundum sem lökkvistarf stóð yfir sást aldrei körfubíll eða bíll með dælubyssur og reyndar komust engir slökkvibílar að svalahlið hótelsins þar sem eldurinn dreifði sér. (-Til að stækka myndir smellið á þær og svo aftur.)
Bruni í Playmon05

Þegar slökkvistarfi lauk kom í ljós að gólfin sem voru byggð með gamla laginu með múrstenum voru við að hrynja eftir brunann. Það sést vel á einni myndanna.

Enginn lést í þessum bruna en 17 manns voru laðgir á sjúkrahús með grun um reykeitrun, þar af einn slökkviliðsmaður.

Ég er nokkuð viss að enginn annar var í aðstöðu til að taka boðlegar myndir af eldinum á meðan hann var enn að dreifa úr sér, og mér hefur fundist síðan þetta var að aðrir þyrfti að geta séð hvernig eldurinn dreifðist í þessum bruna á örfáum mínútum með sóltjöldum og sundfötum á svalasnúrum, og hvernig að brunavörnum er staðið í háhýsaborginni Benidorm. Slökkviliðsmennirnir stóðu sig frábærlega en aðstaða þeirra bæði hvað varðar  aðgengi að svalahlið hússins sem var ekkert og tækjabúnaður virtist í engu samræmi við verkefnið.
Ef ég færi eftur til Benidorm myndi ég því velja mér hótel sem örugglega væri byggt á seinni árum og hefði ekki sóltjöld framaf svölum.

Bruni í Playmon06Bruni í Playmon09Bruni í Playmon10Eldur í Paradís_15Bruni í Playmon04Eldur í Paradís_16Eldur í Paradís_17
Eldur í Paradís_18Eldur í Paradís_20

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fjórar myndir í röð hér sem þegar betur er að gáð má sjá að eru allar af sama stað á húsinu og eins klipptar, sýna þróun frá því glóð berst á milli með sóltjöldum þar til meira en klukkutíma seinna að slökkviliðsmaður  er kominn í gegn  en þá er íbúðin fyrir ofan alelda.

Eldur í Paradís_22Eldur í Paradís_23Eldur í Paradís_24Eldur í Paradís_21Eldur í Paradís 25


mbl.is Mikið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr þessu verður að túlka vafann í þágu lífsins á jörðinni.

Það má vel vera að seinna eigi eftir að koma í ljós að hlýnun lofthjúps Jarðar nú hafi einfaldlega stafað af eðlilegum sveiflum í varmageislun sólar, en þegar um það er verulegur vafi og raunverulegur möguleiki að við mennirnir séum að eyðileggja jafnvægið í lofthjúpnum sem stjórnar loftslaginu í lífhvelinu þ.e. þar sem allt líf þrífst sem við vitum um að er til í alheiminum, þá höfum ekki efni á að okkur skjátalst um það en ríku þjóðir heims svo ekki sé talað um USA hafa vel efni á að rifa seglin og vernda lofthjúpin þó svo kæmi í ljós seinna að það hefði verið óþarft.
mbl.is Deilt um innihald skýrslu um afleiðingar loftslagshlýnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband